Þessum upplýsingum er ætlað að skýra hvernig glasafrjóvgunarmeðferð (IVF) fer fram og við hverju má búast þegar gengið er í gegnum það ferli.
Það er mikilvægt að hafa góðan skilning á ferlinu svo við mælum með að lesa upplýsingaritið vandlega. Ef eitthvað er óljóst eða einhverjar spurningar vakna erum við til staðar til að svara þeim.
Hvað er glasafrjóvgun?
Glasafrjóvgun er frjósemismeðferð sem gengur út á að sækja egg í eggjastokkana, frjóvga þau með sæði á rannsóknarstofunni og rækta fósturvísa í hitaskáp. Ef til verður fósturvísir af nægilega góðum gæðum er honum komið fyrir í legi þess sem ætlar að bera þungunina þar sem fósturvísirinn hefur möguleika á að hreiðra um sig, vaxa og dafna og verða að fóstri.
Glasafrjóvgunarmeðferð tekur yfirleitt 4-6 vikur, frá upphafi lyfjameðferðar og fram að þungunarprófi.
Ekki er víst að allir fósturvísar nái nægilega góðum gæðum til að henta til uppsetningar í leg og af þeim sem hægt er að setja upp er aðeins hluti sem getur orðið að barni. Meðferðin getur þó aukið líkur á þungun verulega hjá þeim sem glíma við ófrjósemi. Líkurnar á árangri eru háðar mörgum þáttum, svo sem ástæðu fyrir ófrjósemi, aldri og vissum heilsufars- og lífsstílsþáttum. Algengt er að þurfa að ganga í gegnum fleiri en eina glasafrjóvgunarmeðferð til að ná árangri. Líkur á fósturláti eru þær sömu hvort sem um náttúrulega þungun eða þungun eftir glasafrjóvgun er að ræða.
Í sumum tilvikum er notast við gjafaegg og/eða gjafasæði við glasafrjóvgunarmeðferð.

Undirbúningur fyrir meðferðina
Þegar tekin hefur verið ákvörðun um að hefja glasafrjóvgunarmeðferð mun læknir útbúa meðferðaráætlun og ávísa þeim lyfjum sem nota á við meðferðina. Boðið er upp á viðtal við hjúkrunarfræðing þar sem gangur meðferðar er útskýrður og skjólstæ
ðingum kennt að nota lyfin.
Sendir eru rafrænir lyfseðlar. Um er að ræða sérhæfð lyf sem ekki öll apótek eiga til á lager og þau geta því þurft að panta þau. Gott er að gera ráð fyrir að pöntunin geti tekið 2-3 daga. Mælt er með að lyfin séu sótt 1-2 vikum áður en von er á blæðingum í þeim tíðahring þar sem meðferðin á að hefjast.
Hvað get ég gert?
Það sem skjólstæðingar geta sjálfir gert til undirbúnings fyrir meðferðina er að leggja áherslu á heilsusamlegt líferni og halda áfengis- og koffínneyslu í lágmarki. Mælt er gegn reykingum, hvort sem er sígarettureykingum eða rafrettum. Færri langtímarannsóknir eru til hvað varðar skaðsemi nikótíns á öðru formi en mælt er með að slíku sé hætt fyrir upphaf meðferðar.
Mikilvægt er að einstaklingur sem hyggur á að ganga með barn taki fólínsýru þar sem hún gegnir mjög mikilvægu hlutverki við eðlilega þroskun taugakerfis fósturs. Gott er að hefja töku fólínsýru um leið og farið er að huga að barneignum. Jafnframt virðast rannsóknir sýna mögulegan ávinning af töku D-vítamíns og Omega-3. Þessi vítamín má kaupa í apótekum án lyfseðils.

Hvernig fer meðferðin fram?
Meðferðin felur í sér eftirfarandi skref:
- Örvun eggbúa með hormónalyfjum
- Skoðanir og mat á vexti eggbúa
- Gjöf eggþroskunarlyfs
- Eggheimtu
- Skil á sæðissýni / afþíðingu sæðis
- Frjóvgun eggja með sæði og ræktun fósturvísa
- Lyfjagjöf eftir eggheimtu
- Uppsetningu fósturvísis
- Frystingu umfram fósturvísa ef einhverjir myndast
- Þungunarpróf
Örvun eggbúa
Í venjulegum, náttúrulegum tíðahring hjá flestum einstaklingum nær eitt egg fullum þroska og losnar úr öðrum hvorum eggjastokknum. Við glasafrjóvgunarmeðferð eru hormónalyf (Gonal-F®, Bemfola®, Rekovelle®, Menopur®, Pergoveris®) notuð til að örva eggjastokkana þannig að mörg egg nái að þroskast samtímis og líkur á þungun aukist þar með. Þessi hormónalyf eru á sprautuformi og eru gefin undir húð daglega. Örvunarmeðferðin hefst á fyrstu dögum tíðahringsins og varir yfirleitt í u.þ.b. 10-14 daga.
Samhliða örvuninni þarf að gefa bælilyf til að koma í veg fyrir að ótímabært egglos verði áður en komið er að eggheimtunni (Cetrotide®, Ganirelix®). Bælilyfinu er bætt við á 5.-6. degi örvunar og haldið áfram með það samhliða örvunarlyfinu út örvunartímabilið.
Algengar aukaverkanir af örvunarlyfjunum eru þrýstingstilfinning í kvið, eymsli og þaninn kviður. Þessi einkenni stafa af vexti eggbúa en mjög einstaklingsbundið er hvort og hversu mikil slík einkenni koma fram. Einnig er nokkuð algengt að finna fyrir skapsveiflum, eymslum í brjóstum, aukinni útferð, ógleði, þreytu og jafnvel höfuðverk.
Mjög algengt er að bælilyfin valdi staðbundnum einkennum frá stungustaðnum, svo sem roða og kláða. Þessi einkenni ganga yfirleitt fljótt yfir og eru hættulaus.
„Löng“ meðferð (agonistameðferð): Í stöku tilfellum ávísar læknirinn þessari tegund meðferðar. Þá fer fram lengri bæling á starfsemi eggjastokkanna sem hefst í tíðahringnum áður er örvun fer fram og stendur yfirleitt í um 10-14 daga. Notað er bælilyf sem gefið er á formi nefúða (Synarela®) og er lyfinu svo haldið áfram samhliða örvunarhormóninu. Algengar aukaverkanir af þessu lyfi eru hitakóf, svitaköst, svimi, þurrkur í leggöngum, höfuðverkur og þreyta.
Sumum getur þótt erfitt að gefa sér sprautulyfin og geta þurft að fá hjálp frá maka eða öðrum aðstandanda. Starfsfólk Sunnu mun útskýra vel hvernig lyfin eru notuð og sömuleiðis eru til góð kennslumyndbönd á netinu.
Skoðanir og mat á vexti eggbúa
Til að meta svörun við örvunarlyfjunum eru gerðar ómskoðanir um leggöng. Mismunandi er hversu oft þarf að framkvæma skoðun, í sumum tilvikum nægir að skoða einu sinni meðan í öðrum tilvikum getur þurft að skoða oftar. Fyrsta skoðunin fer yfirleitt fram á 7.-9. degi í örvunarmeðferðinni.
Gjöf eggþroskunarlyfs
Þegar stærð og fjöldi eggbúa er metinn nægur er komið að því að gefa lyf sem hjálpar eggjunum að ljúka síðasta stigi þroskaferilsins (Ovitrelle®). Þessi sprauta er gefin 36 klukkustundum fyrir eggheimtuna og mjög mikilvægt er hún sé gefin á hárréttum tíma þar sem þá eru bestar líkur á að ná eggjum sem eru fullþroskuð en áður en þau eru losuð úr eggjastokkunum. Eftir að eggþroskunarsprautan er gefin eru ekki notuð fleiri lyf fram að eggheimtunni, hvorki örvunar-né bælilyf.
Í sumum tilfellum, ef hætta er á oförvun, getur þurft að taka ákvörðun um að nota annað eggþroskunarlyf. Starfsfólk mun ávísa því og útskýra vel ef við á.
Eggheimta
Eggheimtan er lítið inngrip sem fer fram um leggöng í staðdeyfingu og slævingu og tekur í heildina um 20-30 mínútur. Hún fer fram fyrir hádegi og mælt er með að borða léttan morgunverð og taka verkjalyf (2 töflur paracetamol 500 mg) um klukkustund fyrir inngripið. Við komu á Sunnu er skjólstæðingum vísað inn í hvíldarherbergi og hjúkrunarfræðingur setur upp æðalegg og gefur slakandi lyf áður en haldið er inn á aðgerðarstofuna.
Inni á aðgerðarstofunni er verkjalyf gefið í æð og staðdeyfing lögð ofarlega í leggöngin. Eggheimtan fer fram með aðstoð leggangaómtækis og hægt er að fylgjast með inngripinu á skjá. Grönn nál er fest á ómstafinn og notuð til að soga vökvann úr eggbúunum, hverju á fætur öðru. Þessi vökvi er svo afhentur fósturfræðingi sem situr við smásjá og skoðar hvort og þá hversu mörg egg voru í eggbúsvökvanum. Í hverju eggbúi getur verið að hámarki eitt egg en stundum geta eggbúin innihaldið vökva án eggs. Það er mjög breytilegt hversu mörg egg fást við eggheimtuna, háð eggjaforða einstaklingsins sem og svörun við örvuninni. Nokkuð algengt er jafnframt að hluti eggjanna sé óþroskaður og þau egg geta ekki frjóvgast.
Gott er að hafa í huga að hafa þvaglát fyrir allar skoðanir og eggheimtuna en fyrir uppsetningu fósturvísis á hins vegar að gæta þess að hafa þvagblöðruna fulla og hafa því ekki þvaglát í a.m.k. 2 tíma fyrir uppsetninguna.
Algengt er að finna fyrir þrýstingi við eggheimtuna og í sumum tilvikum óþægindum svipuðum tíðaverkjum. Afar einstaklingsbundið er hvernig upplifunin af eggheimtunni er, yfirleitt eru óþægindin væg og upphafsskammturinn af verkjalyfjum nægir meðan í öðrum tilvikum getur þurft að gefa ábót. Það er metið í hverju tilfelli fyrir sig.
Eftir eggheimtuna er skjólstæðingum fylgt aftur fram á hvíldarherbergið þar sem þeir fá tækifæri til að jafna sig nokkra stund, fara á salernið og fá sér að borða og drekka. Fyrir heimför eru gefnar upplýsingar um fjölda eggja sem fengust og tími bókaður í uppsetningu fósturvísis.
Gott getur verið að eiga paracetamol og íbúfen heima til að taka eftir eggheimtuna, ef þörf krefur.
Mælt er með að hafa ekki samfarir viku fyrir og viku eftir eggheimtu
Flestum þykir betra að hafa stuðningsaðila með sér við eggheimtuna. Þessi aðili getur verið maki, ættingi eða vinur, allt eftir aðstæðum og óskum.

Skil á sæðissýni / afþíðing sæðis
Ef notast er við ferskt sæði er sæðissýni skilað að morgni sama dag og eggheimtan fer fram. Framleiða má sýnið heima og taka með sér en einnig er möguleiki að framleiða sýnið á til þess gerðu herbergi hjá Sunnu frjósemisstofu. Einstaka sinnum getur komið til þess að starfsfólk rannsóknarstofu óski eftir að öðru sæðissýni sé skilað til viðbótar.
Ef notast er við fryst sæði (frá maka eða gjafasæði) er það afþítt og undirbúið samdægurs.
Frjóvgun eggja með sæði og ræktun fósturvísa
Frjóvgunin fer fram sama dag og eggheimtan er framkvæmd. Út frá gæðum sæðisins á eggheimtudeginum er tekin lokaákvörðun um frjóvgunaraðferð. Ef sæðið uppfyllir ákveðin gæðaskilyrði eru eggin og sæðið sett saman í skál við kjöraðstæður í hitaskáp og hefðbundinni frjóvgun leyft að eiga sér stað. Ef sæðisgæði eru verulega skert getur þurft að framkvæma svokallaða smásjárfrjóvgun (ICSI) þar sem stungið er á eggfrumunni með örfínni nál og einni sáðfrumu komið fyrir inni í egginu. Þetta fer fram í mikilli stækkun undir smásjá.
Morguninn eftir athugar fósturfræðingur hvort frjóvgun hafi orðið og hringt er í skjólstæðingana til að veita upplýsingar um stöðuna og kanna líðan.
Að jafnaði frjóvgast um helmingur eggjanna en þetta hlutfall getur stundum verið lægra eða hærra. Einstaka sinnum kemur fyrir að engin frjóvgun verður og er þá boðið upp á viðtal við lækni og fósturfræðing til þess að ræða stöðuna og meta næstu skref.
Eggin sem hafa frjóvgast kallast fósturvísar og eru nú ræktuð við kjöraðstæður í hitaskáp næstu daga þar sem hægt er að fylgjast með þróun þeirra og frumuskiptingum í myndavél. Eftir að fyrsta frumuskiptingin hefur átt sér stað er talað um að eggið sé orðið að fósturvísi. Markmiðið er að rækta fósturvísana þangað til þeir hafa náð svokölluðu kímblöðrustigi, sem tekur 5 eða 6 sólarhringa. Að jafnaði nær um helmingur frjóvgaðra eggja að þroskast í kímblöðru en þetta hlutfall getur verið mjög breytilegt og er háð aldri og magni eggjanna sem og gæðum sæðisins. Að morgni 5. dags eftir eggheimtuna skoðar fósturfræðingur fósturvísana, metur hvort einhverjar kímblöðrur hafa myndast og ef svo er hvort gæði þeirra séu góð. Ef gæðaskilmerki eru uppfyllt er kímblaðra sett upp í legið á 5. degi eftir eggheimtuna.
Ef engin nægilega góð kímblaðra myndast í ræktuninni verður bókað samtal við lækni og fósturfræðing til að ræða framhaldið.
Lyfjagjöf eftir eggheimtu
Daginn eftir eggheimtuna hefst gjöf gulbúshormóns/prógesteróns (Lutinus®, Crinone®, Cyclogest®). Þetta er hormón sem undirbýr legslímhúðina til að taka á móti frjóvguðu eggi. Lyfið er gefið fram að þungunarprófi og ef prófið er jákvætt er lyfið notað í samtals 3 vikur.
Nokkuð algengar aukaverkanir af lyfjum sem innihalda gulbúshormón eru aukin útferð, krampatilfinning í legi og í stöku tilfellum ógleði.
Uppsetning fósturvísis
Á fimmta degi er komið að því að setja kímblöðru upp í legið. Uppsetningin er yfirleitt án teljandi óþæginda og ekki þörf á verkjalyfjum. Inngripið tekur um 5-10 mínútur og felst í því að grönn, mjúk plastslanga er þrædd gegnum leghálsinn og upp í legholið og notuð til að koma fósturvísinum fyrir. Á meðan þetta fer fram er gerð ómskoðun gegnum kviðinn og oft má sjá merki þess á skjánum að fósturvísirinn sé kominn á réttan stað. Í sumum tilvikum getur lega legsins torveldað ómskyggnið en það hefur ekki nein áhrif á uppsetninguna. Hægt er að snúa aftur til vinnu eða annarra daglegra athafna eftir uppsetninguna.
Frysting fósturvísa
Ef fleiri en ein kímblaðra af nægilega góðum gæðum myndast er hægt að frysta umfram kímblöðru/-r til síðari nota. Frystingin fer fram á 5. eða 6. degi eftir eggheimtuna. Þú færð upplýsingar munnlega og skriflega á 6. degi.
Þungunarpróf
Um það bil tveimur vikum eftir uppsetningu fósturvísis er þungunarpróf tekið. Ef prófið er jákvætt er skjólstæðingum gefinn tími í þungunarómskoðun hjá lækni á Sunnu um það bil 3 vikum síðar. Ef prófið er neikvætt ræðum við saman um framhaldið.
Aukaverkanir
Tíðni aukaverkana er sem betur fer lág við glasafrjóvgunarmeðferðir.
Oförvunarheilkenni
Ef of mörg eggbú þroskast við örvun í tengslum við glasafrjóvgunarmeðferð (fleiri en 20 eggbú) getur svokallað oförvunarheilkenni komið fram. Einkenni þess eru þrýstingur og jafnvel verkir í kviðarholi, þensla í kvið, ógleði og í alvarlegum tilfellum mæði. Einkenni geta byrjað meðan á örvun stendur en versna yfirleitt eftir eggheimtu og getur í sjaldgæfum tilfellum krafist innlagnar á sjúkrahús. Þetta er algengara hjá sjúklingum með PCOS. Yfirleitt er hægt að sjá fyrir meðan á örvun stendur hvort stefnir í hættu á oförvun og er þá unnt að aðlaga meðferðina að því, gefa annað eggþroskunarlyf og fresta uppsetningu fósturvísis þangað til skjólstæðingur hefur jafnað sig, sem yfirleitt tekur ekki meira en 1-2 tíðahringi. Með þessu móti verða einkenni yfirleitt mun vægari eða jafnvel lítil sem engin. Fósturvísar eru þá frystir en mikilvægt er að hafa í huga að líkur á þungun eru jafn miklar við uppsetningu á frystum fósturvísi og ferskum.
Utanlegsþungun
Í einstaka tilfellum (1%) hreiðrar fósturvísirinn um sig utan legsins eftir uppsetningu, yfirleitt þá í eggjaleiðaranum. Þungunarpróf verður þá jákvætt en óeðlileg einkenni geta gert vart við sig, svosem blæðingar og verkir. Stundum er utanlegsþungun einkennalaus og grunur kviknar aðeins við ómskoðun en í slíkum tilfellum er ekki hægt að staðsetja þungunarsekk í legholinu.
Utanlegsþungun getur þurft að fjarlægja með kviðarholsspeglun.
Sýkingar og blæðingar
Eins og við öll inngrip geta orðið sýkingar og blæðingar í tengslum við eggheimtu en þetta er sem betur fer mjög sjaldgæft (<1%). Einkennin eru þá yfirleitt slæmir, vaxandi verkir dagana eftir eggheimtu og jafnvel hiti.
Fyrirburafæðingar, lág fæðingarþyng og fjölburaþungun
Rannsóknir hafa bent til að áhætta á fyrirburafæðingu og lágri fæðingarþyngd virðist aðeins aukin við meðgöngu eftir glasafrjóvgunarmeðferð. Í sumum tilfellum getur þetta tengst því að um fjölburaþungun er að ræða en áhættan á að fósturvísir skipti sér og verði að fjölburum er örlítið aukin þó hún sé almennt lág.
Andleg líðan
Ófrjósemisvandi og frjósemismeðferðir valda álagi og streitu hjá einstaklingum og/eða í samböndum og mikilvægt er að vera meðvitaður um það. Við hjá Sunnu frjósemisstofu erum alltaf reiðubúin að ræða málin og veita stuðning og eins bendum við á möguleika á viðtali við sálfræðing okkar sem hefur sérstaka reynslu og áhuga á þessum málaflokki.



