Bankarnir okkar

Bankarnir okkar

Við hjá Sunnu erum í samstarfi við þrjá viðurkennda sæðisbanka og einn eggjabanka. Allir bankarnir bjóða upp á persónulega einstaklingsmiðaða þjónustu.

European Sperm Bank

European Sperm Bank leggur áherslu á vandaða þjónustu og mikla fjölbreytni í vali á sæðisgjöfum, með sérsniðnum lausnum sem tryggja þægindi og öryggi fyrir alla skjólstæðinga.

Seattle Sperm Bank

Seattle Sperm Bank býður upp á gæðaþjónustu og fjölbreytt úrval sæðisgjafa með persónulegri nálgun sem tryggir aðferðir sem henta hverjum og einum.

Cryos International

Cryos International er stærsti sæðis- og eggjabanki heims með áratuga reynslu og aðgengi að fjölbreyttum gjafasöfnum sem uppfylla ströngustu gæðastaðla

Ferlið

Fyrsta skrefið er að panta tíma hjá kvensjúkdómalæknum Eddu sem staðsettir eru í Evuhúsi. Efyir samtal við lækni er tekin ákvörðun um hvert næsta skref er.

Hjúkrunarfræðingar Sunnu frjósemi munu svo leiða ykkur í gegnum ferlið sem við tekur sé ákvörðunin að notast við gjafakynfrumur (egg eða sæði)

Hafa má samband við hjúkrunarteymi Sunnu með að senda fyrirspurn á [email protected]

Varðandi val og samskipti við bankana:

Við mælum sterklega með því að fólk veljir sér MOT20 strá en hægt er að nota MOT10 í glasafrjóvgunarmeðferðir. Ekki er mælt með að nota MOT10 í tæknisæðingar. Þá er mikilvægt að kaupa eingöngu IUI einingar í öllum tilfellum.
Kostnaður vegna innflutnings og geymslu kynfrumna 39.500 bætist við kostnað kaupanna. Innifalið í því verði er frystigjald kynfrumna/fósturvísa í fyrstu 12 mánuðina.