Bankarnir okkar
Bankarnir okkar
Við hjá Sunnu erum í samstarfi við þrjá viðurkennda sæðisbanka og einn eggjabanka. Allir bankarnir bjóða upp á persónulega einstaklingsmiðaða þjónustu.
Ferlið
Fyrsta skrefið er að panta tíma hjá kvensjúkdómalæknum Eddu sem staðsettir eru í Evuhúsi. Efyir samtal við lækni er tekin ákvörðun um hvert næsta skref er.
Hjúkrunarfræðingar Sunnu frjósemi munu svo leiða ykkur í gegnum ferlið sem við tekur sé ákvörðunin að notast við gjafakynfrumur (egg eða sæði)
Hafa má samband við hjúkrunarteymi Sunnu með að senda fyrirspurn á [email protected]
Varðandi val og samskipti við bankana:
Við mælum sterklega með því að fólk veljir sér MOT20 strá en hægt er að nota MOT10 í glasafrjóvgunarmeðferðir. Ekki er mælt með að nota MOT10 í tæknisæðingar. Þá er mikilvægt að kaupa eingöngu IUI einingar í öllum tilfellum.
Kostnaður vegna innflutnings og geymslu kynfrumna 39.500 bætist við kostnað kaupanna. Innifalið í því verði er frystigjald kynfrumna/fósturvísa í fyrstu 12 mánuðina.